Jæja fyrirgefið bloggleysið síðustu daga/vikur.
Jólafríið er byrjað loksins. Sw33t L0rd. Er engan vegin að fatta
að það eru einungis 3 dagar í jól. Þessi mánuður hefur liðið á
ljóshraða. Það er ágætt ágætt, það er ágætt.
Hvað ætla ég að gera um jólin?
Jú...
- Borða mat, mikið af mat
- Sofa, sofa vel
- Fara í ræktina, minnsta kosti annan hvern dag.
- Kveikja í ruslatunnum
- Skemmta mér með strákunum
- Ef til vill spila líka
- Fara í jólaboð
- Horfa á Enska boltann
- Brjóta allt og bramla
- Vera heima og horfa á sjónvarpið (svosem Enska eða eitthvað
annað)
- Læra eitthvað, prófin í Janúar.
- Leysa allt upp í vitleysu
- Vera ógeðslega leiðinlegur við allt og alla
- Ekki tala við nokkurn mann, hvað sem viðkomandi segir.
- Nema ef einhver snertir mig þá öskra ég eins hátt og ég
get
- Ne-ei, nú er ég farinn að bulla og er hættur þessu
- Ætla að halda blogga smá
Ef ég segi svona frá því sem dagana hafa drifið. Þá fór ég suður um
helgina síðustu á U17 æfingar. Gekk vel bara. Gisti hjá Sella með
Nasa og Svenna og Krilli var einnig fyrir sunnan en þeir voru á U17
í fótboltanum. Fórum í keilu á laugardagskvöldið. Tókum tvær
umferðir. Það var alveg ótrúlegt hvað manni gekk illa. Lét menn
eins og Krilla og Sella fara með sigur af hólmi. Hef aldrei fengið
eins lítið að stigum á meðan Krilli halaði stigum inn með ljótasta
keilustíl sem sést hefur í keiluhöllinni.
Í gær voru svo eins konar litlujól í skólanum. Einhverjar ræður
og fékk maður smákökur og mandarínur og læti.
Segji þetta meira en gott. Kannski einhver af okkur strákunum
komi með eitt blogg eða svo fyrir jól. Sjáum til með það.
Allavega þau sem ég á ekki eftir að sjá fyrir jól, hafið það
gott um jólin.
Gleðileg Jól og Farsælt komandi ár.
Oddur
