|
|
21.06.2007 02:30:11 / oddur
Verð að koma með eitt blogg á þetta hér. Vá.
Sumarið er komið og maður hefur ekkert betra að gjera en að gera
einhverja helvitis vytleysu eins og að blogha.
Þannig er það að maður er að fara til Greece - Rhodos eftir
fáeina klukkutíma, laugardaginn nkl. kl 07:00. Tvær vikur þar og
maður kemur nýr og betri maður til bage.
Náði MA með hlunnindum miklum, aðeins eitt upptökupróf í Ensku
102 sem ég tók með annarri. Sumarfríið staðreynd (staðfest) og
maður hefur ekki gert "skít á kanil"* það sem af er sumrinu. Bara
sofið út alle dage og engin vinna fyrr enn eftir Greece vinur.
Reyndar stend ég á ströngu í flutningum síðustu vikur enn maður
er að koma sér fyrir hér í nýja húsinu í móasíðu. Það er
ryyyyyyyjjjndar flott bara.
Er í skýjunum núna eftir sunnudaginn. Fyrir utan frábæran
þjóðhátíðardag landsliðið að keppa á móti Serbum. Landslið"IÐ" af
því að karlahandboltalandsliðið er eina landsliðið sem kemst á
stórmót og gerir einhverja góða hluti á þessum mótum. Reyndar
íslenska kvennalandsliðið kannski að fara ná inná stórmót í fyrsta
skipti á 2007 árum. En ég er samt ánægður með þær, unnu
Frakka sem gefa þeim góða möguleika.
Já landleikinn á sunnudag. Ísland vann 42-40 sem gefur þeim
farseðilinn á EM. Hjartað var farið að slá óhugnanlega hratt á
síðustu mínútunum. En það bjargaðist fyrir rest.
"jú ken sök mæ dik iff jú dónt læk mæ sjitt". Hver man ekki
eftir þessum slagara með reynsluboltanum Eminem, Slim Shady,
Marchall Bruce Mathers III eins og hann heitir víst. Hittari af
guðsná.
Sælir félagar og fleiri lesendur mínir.
Heyri í ykkur eftir GREECE ! Jafnvel á GREECE
»
19.05.2007 01:31:58 / krilli

Ég hef ekki ennþá heyrt í þessum fugli á þessu djöfulsins
malbiki.
Hefði ekkert á móti því að komast heim í fjörðinn
fagra...
»
01.05.2007 23:34:26 / krilli
Rosalegasti mánuður lífs míns er genginn í garð. Framundan er
möguleg eilífðarhamingja sem á örskotsstundu gæti breyst í algjöra
martröð.
Manchester United á möguleika á að leika afrekin frá '99 eftir
með því að vinna þrennuna. Til þess þarf liðið að vinna Chelsea í
kapphlaupinu um úrvalsdeildina, og aftur á Wembley í
bikarúrslitunum, og svo er liðið hársbreidd frá úrslitaleik við
Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar.
Hugsið ykkur, Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar!!! Ef
við vinnum Milan á morgun taka við þrjár vikur af andvökunóttum,
köldum svita, draumum um sigur og og hræðilegum martröðum um
tap.
Í fullkomnum heimi myndi liðið klára deildina um helgina með
sigri á erkióvinunum í City á meðan Arsenal ynni Chelsea á
Emirates. Liðið myndi svo fá góða hvíld fyrir bikarúrslitin þar sem
United myndi yfirspila Chelsea-vélina með skemmtilegum
sóknarfótbolta sem myndi binda endi á feril Mourinho hjá Chelsea.
Áfram myndi svo hið mikilfenglega lið storma til Aþenu þar sem
(haldið fyrir eyru barna ykkar) Liverpool myndi bíða. Þar myndi
United vinna með sigurmarki Gary Neville á lokamínútunni og við
tæki fögnuður sem stæði fram á haust.
Ef allt færi á versta veg myndi West Ham bjarga sér frá falli í
seinustu umferð deildarinnar með því að tryggja Chelsea titilinn
með því að leggja United á Old Trafford. Chelsea myndi svo sigra á
Wembley og dæmið myndi snúast við í Aþenu, þ.e. Robbie Fowler eða
álíka djöfull myndi tryggja Liverpool sigur í uppbótartíma.
Það sem ég er að segja er að United er í seilingarfjarlægð frá
ótrúlegum afrekum en liðið hefur ekki unnið neitt ennþá. Fari allt
á versta veg mun ég, og ég skammast mín ekki fyrir það, sitja
einhversstaðar grátandi undir húsvegg áður en að reiðin og ergelsið
tæki yfir og ég gerði eitthvað sem ég sæi eflaust eftir einhverjum
árum seinna.
En fari allt á besta veg mun ég glaður ganga út í sumarið og
fögnuðurinn innra með mér myndi sennilega fylgja mér til
æviloka.
Hvernig sem fer verða næstu þrjár vikur tilfinningalegur
rússíbani fyrir mig og eflaust marga aðra. Spurningin er bara hvort
ég þurfi öxl til að gráta á að þessum tíma loknum eða mun ég
stökkva trylltur af fögnuði upp á þessar sömu axlir? Aðeins tíminn
mun leiða það í ljós.
Game on, ÁFRAM MANCHESTER
UNITED!
»
02.04.2007 13:34:01 / oddur
Jaa, jú, jesús,
djísus.
Bara rétt að taka
púlsinn á fólki.
Þetta blogg átti að koma
í gær en central var í frá. Ætla að hafa þetta ekki mjög langt í
dag. Krilli tók út heilmikinn kvóta í síðasta bloggi. Dramatískasta
blogg í sögu snepsa. Það er agaleg pressa á mér
núna.
Hef því miður my dear
friend ekki mikið að segja. Skelli bara fáeinum puntchum og málið
er dautt.
Puntchar:
- Påskefríið byrjað og
allt fylgir of cors
- Fínasta helgi. Chilllað
in brackingtownhouse og party hjá TvíburaHauki (eða annar af
Twintowers það sem þeir voru kallaðir í denn í Þór þegar þeir voru
þrisvar ef ekki helmingi stærri en allir (vorum alltaf með nöfn á
öllum)).
- Handboltinn Slut hjá 3.
flokki. Síðasti leikurinn var á móti KA sem við töpuðum 31-26.
Auðvitað ekki sáttur með tap enn erum sáttir með veturinn. Erum með
sama hóp á næsta ári (Nema Snake-arinn) og þá förum við alla
leið.
- Stuttmynd er í bígerð,
hún mun örugglega, ef ekki hiklaust, verða auglýst
síðar.
- Sammála síðasta
puntchi
- Klókur
Menn sem ég hef sett mig
í samband við undanfarið:
|
Lórent en hann er
Indverji en
því miður af pólsku bergi brotinn
|
|
Kliperov fyrir hönd Rússa.
Sérhæfur sig í að vera sniðugur og pose
|
|
Hinn síungi Måkkinen frá
Finnlandi. ’59 módel
drengur! |
...Þannig það má segja
að kjellinn hefur sambönd.
Oddur
»
22.03.2007 01:42:00 / krilli
Ég hef verið að pæla hvað ég er búinn að klúðra miklu í vetur.
Ef við lítum á hvar ég var í haust.
1. Ég var útskrifaður úr grunnskóla með frábæra lokaeinkunnir og
hafði verið formaður nemendaráðs í Glerárskóla og átti frábæra vini
þar.
2. Ég var Íslandsmeistari í fótbolta og partur af liði sem bjó
yfir slíkum liðsanda og samstöðu að það væri heimska að vera ekki
þakklátur fyrir það. Þar að auki var mér veittur sá heiður að vera
valinn í landsliðsúrtak, hugsa sér, tækifæri til að æfa fyrir hönd
Íslands! Ennfremur var ég sæmdur hugarfarsverðlaunum á lokahófinu
sem að er enn og aftur mikill heiður.
3. Ég var fullkomlega sáttur við sjálfan mig og mitt líf. Átti
reyndar eftir að sjá hvernig mér líkaði menntaskólinn, en samt sem
áður, líf mitt var í fullkomnu jafnvegi.
En svo kom veturinn. Ég byrjaði í óða önn að skíta upp á herðar
(kannski fullsterkt til orða tekið en samt).
Einn af mínum bestu vinum flutti burt af landinu og án hans
vantaði eitthvað.
Svo fór menntaskólinn ekkert frábærlega af stað, jújú ég á fullt
af vinum þarna og bekkurinn minn er fullur af prýðis-hálfvitum (þið
vitið að hálfviti er jákvætt lýsingarorð úr mínum munni). En það er
e-ð við þennan skóla sem á svo ótrúlega ekki við mig. Ég næ ekki
alveg hvað það er. Eitthvað sem gerir mig hrokafullan og fúlan út í
hann. Veit ekki hvort það sé snobb eða gamlar og leiðinlegar hefðir
eða hvað.
Auk þess var ég kærulaus í náminu og í fyrsta sinn á ævinni
þurfti ég að hafa fyrir því. Ég kann ekki að hafa fyrir námi. Ég
veit ekki hvernig á að vinna heimavinnu og ég kann ekki að leggja
mig fram við nám. Ég fékk samt sem áður prýðiseinkunnir um jólin og
vona að það sama verði uppi á teningnum í vor (Fyrir mínar sakir og
föður míns).
Síðast en ekki síst breyttist fótboltinn smám saman úr því að
vera það sem ég lifði fyrir í að vera einhver partur af deginum sem
mér fannst bara skylda að klára. Ég varð ósáttur út í marga hluti
innan fótboltans og varð í rauninni hálf þunglyndur á æfingum og í
kringum boltann. Meðal annars kastaði ég frá mér
landsliðstækifærinu útaf því að ég hafði ekkert gaman að fótbolta.
Mætti áhugalaus með hangandi haus á landsliðsæfingar. (nú er
kannski einhver sem að hefur dreymt um að fá að fara á
landsliðsæfingu í fótbolta að hugsa "hvílíkur hálfviti sem þetta
er" og já ég á það skilið).
Á endanum tók ég þá ákvörðun að hætta í fótbolta. Ég sá ekki
aðra lausn. Ég var ekki tilbúinn að stíga upp á þetta professional
level sem átti að hífa annan flokkinn upp á. Ég hins vegar skil af
hverju það var gert. Auðvitað á að nýta sér menn sem að ná árangri
og reyna að gera þá að einhverju öðru en bara vera efnilegir.
Eftir þetta hefur skap mitt farið versnandi með hverjum deginum.
Ég get ekki lifað án fótbolta. Fótbolti er mitt líf og það er
sjálfsblekking að halda örðu fram. En ég veit ekki hvað ég á að
gera. Á ég að koma bara aftur í Þór þótt að mér finnist ég ekki
tilbúinn að taka þátt í því sem þar er í gangi? Spurning um að
spila fótbolta einhvers staðar til að hafa gaman af því í smá stund
og sjá svo til. Það gæti bara verið of seint.
Jæja verð að hætta þessu, varð bara að koma þessu frá mér. Það
hjálpar mér helling í að hugsa mín mál. Komment eru vel þegin,
endilega skammið mig, hrósið mér, hlæið að mér, segið hæ eða
spammið einhverju penis enlargement dæmi. Mér er sama.
Ps. Enginn er skyldugur til að lesa þetta allt. Ég persónulega
yrði verulega pirraður ef einhver væri að æla svona væli í eyrað á
mér.
Úti.
»
16.03.2007 00:37:45 / oddur
Negli einu laggóðu bloggi inn við tækifæri.
Nei nei
Vikan leið á ljóshraðanum. Mánudagur: frí í skóla. Þriðjudagur:
Ratatoskur (tararoskur) vettfangsferð á rúv, kurling og meira.
miðvikudagur og fimmtudagur: hefðbundin.
Það var klárt mál að rúv ferðin stóð upp úr í vikunni. Ég og
Gestur Einar erum orðnir "like this".
Maður er rétt svo að fá æfingarleyfi á morgun. Það er eitt skref
í átt að áfangastað.
Helgin er ekki ákveðin. Þó er leikur á laugardag => Þór - ÍR
í síðuskóla (tímasetning óákveðin) Auðvelt er að komast að því.
Allir að mæta. Hörkuleikur !!
En þetta er afar stutt en geðþekkt í kvöld.
Verið sæl og lifið sæl og verum sæl.
Oddur bakari
»
08.03.2007 00:29:09 / krilli
"..Á Vopnafirði er mildasta
loftslag á Íslandi og fáeina daga ársins getur hitastigið
orðið hið hæsta í Evrópu. Á fáum öðrum stöðum í þessum
heimshluta er loftið jafn hreint, vatnið jaft tært og grasið
jafn grænt og á Vopnafirði. Þegar gengið er um einhvern
eyðidalinn er jafnvel hægt að finna sundlaug fulla af
náttúrulegu hreitu vatni þar sem notarlegt er að fara ofan í
og synda. Því er ekki að undra að sumum finnist
Vopnafjörður paradís á
Jörðu."
Tekið með vonandi góðfúslegu leyfi af
thura.bloggar.is
Og
þetta er tekið úr kennslubók sem
kennd er í MA! Dálítið betra en þessi skítaskurður sem við
búum í haaa?
(leiðrétting: þetta er víst úr bók um
ísland sem er gefin út af sameinuðu
þjóðunum)
Og að lokum
Glory
glory

»
20.02.2007 00:19:57 / oddur
Nú er maður agalega trylltur og villtur á
kantinum.
Já ég heiti
Oddur þeir sem ekki vita. Bara svona að skvetta
inn einu bloggi til að ferska uppá þetta svolítið.
Maður er
loksins byrjaður í ökuskólanum, fyrsti tíminn í Ö einum í dag.
Bjóst við að þetta væri bara kannski einn til tveir tímar, neinei
þá eru þetta rúmir 3 tímar og bara 3 til 4 pjásur á milli. Ég og
Doddi ætluðum vart að trúa þessu.
Síðan fer ég í fyrsta keyrslutíman á morgens. Verð að segja eins
og er að ég er eilítið stressaður fyrir honum, en þetta ætti alveg
að bjargast þar sem maður er búinn að vera að fitla eitthvað við
þetta.
En váa, finnst ónáttúrulega stutt síðan ég var í svona
8 bekk og bara shiiiitt það eru 3 ár í þetta, síðan bara allt í
einu eru bara einhverjir 5 mánuðir í þetta og allt að gerast.
Reyndar er næg vinna eftir; klára Ö1, fara í Ö2 svo allir þessi
ökutímar. Allt kostar sitt. Nema hvað að ég og Doddi fáum
eitthvað af þessu ókeypis því að Afi okkar heitinn var einn af
stofnendum þessa félags eða skólans eða e-ð. Afi er goðsögn.
Að maður hafi
ekki þekkt þennan mann.
En
að öðru.
Helgin var
pínu undarleg að hálfu leyti. Fór á árshátíð Síðuskóla á fös. Sá
nokkrar sýningar, m.a. 10. bekkjar leikritið í ár. Sorry krakkar en
ég get ekki hrósað því hástert. Auðvitað var pressa á þeim eftir
leikritið í fyrra sem fór hreinlega á kostum. En þið fáið plús
fyrir að reyna, hefði mátt vera meira joke and phutt i þessu.
Kennaragrínið var REYNDAR gott. Miklu betra en okkar í
fyrra. Skildi alveg flest af þessu því maður var með mest af þessum
kennurum í fyrra. Skildi reyndar ekki nemandagrínið. Sorry Bibbi ef
þú ert að lesa (sem er frekar ólíklegt held ég, aldrei að vita
hvað maðurinn er að brasa).
Síðan laugardagsmorgun áttum við að leggja af stað
suður handboltinn. Og jájá lögðum af stað aðeins SJÖ leikmenn og
keyrðum í hálftíma eða svo, þá sagði Tryggvi okkur bara að snúa
við. Fannst þetta alltof mikið. Frestuðum bara leikjunum. Yesss,
vakna kl 7 fyrir að keyra í klukkutíma! Yeah.
Reyndar tryllllt að sofa til hálf 2 og fara svo að þjálfa.
Laug. Kvöldið
var frekar undarlegt förum hægt út í þá sálma.
Sunnudagur. Oftast jafn leiðinlegir. Fór til Þórodds í
Bollukaffi. Bollur REYNDAR góðar. Fórum síðan með Jóhann G og Andra
Valalala á einn dapurlegasta leik sem ég hef séð. Þetta var frekar
dapurt. Töpuðu með e-ð 7 mörkum.
Jæja þá
að síðumálum. Ég og Krilli höfum verið að spjalla og spá í að
láta eitthvað tryllllt á þetta. Rugla einhver video,
gera lög og myndir og eitthvað faaaakking ragggl.
comment?
Pís
fakkking
out.
Oddur ( Ó Djí )
»
06.02.2007 22:43:41 / krilli
Þetta blog er tileinkað minningu þeirra sem létust í flugslysinu
í Munchen þann 6. febrúar 1958, en 49 ár eru liðin frá slysinu í
dag.
Sir Matt Busby hafði byggt upp frábært lið sem átti bjarta
framtíð fyrir sér þegar hrömungarnar áttu sér stað. United hafði
gert jafntefli við Red Star Belgrade 3-3 í meistaradeildinni og
flugu heim með millilendingu í Munchen. Þeir reyndu þrisvar að fara
í loftið en sneru við í fyrstu tvö skiptin. Í þriðja skiptið tókst
vélin ekki á loft heldur kastaðist út af flugbrautinni og lenti í
tvennu lagi fyrir utan hana. 7 leikmenn dóu og Duncan Edwards dó
einnig af sárum sínum nokkrum vikum síðar.

One cold and bitter
Thursday in Munich, Germany,
Eight great football stalwarts conceded victory,
Eight men who will never play again who met destruction there,
The flowers of English football, the flowers of
Manchester
Matt Busby's boys were flying,
returning from Belgrade,
This great United family, all masters of their trade,
The Pilot of the aircraft, the skipper Captain Thain,
Three times they tried to take off and twice turned back
again.
The third time down the runaway
disaster followed close,
There was a slush upon that runaway and the aircraft never
rose,
It ploughed into the marshy ground, it broke, it overturned.
And eight of the team were killed as the blazing wreckage
burned.
Roger Byrne and Tommy Taylor who were capped for England's
side.
And Ireland's Billy Whelan and England's Geoff Bent died,
Mark Jones and Eddie Colman, and David Pegg also,
They all lost their lives as it ploughed on through the
snow.
Big Duncan he went to, with an injury
to his frame,
And Ireland's brave Jack Blanchflower will never play again,
The great Sir Matt Busby lay there, the father of his team
Three long months passed by before he walked
again.
The trainer, coach and secretary, and a member of the
crew,
Also eight sporting journalists who with United flew,
and one of them Big Swifty, who we'll ne'er forget,
the finest English 'keeper that ever graced the net.
Oh, England's finest football team
its record truly great,
its proud successes mocked by a cruel turn of fate.
Eight men will never play again, who met destruction there,
the flowers of English football, the flowers of
Manchester
United's flag is deepest
red,
It covered all our Munich dead,
Before their limbs grew stiff and
cold,
Their hearts blood dyed its every
fold.
So keep United's banner high,
Beneath its shade we'll live and
die,
So keep the faith and never fear,
We'll keep the red flag flying
here.
We'll never die,
We'll never die,
We'll never die,
We'll never die,
We'll keep the red flag flying
high,
Cos Man United will never
die.
Manchester
United
FOREVER AND
EVER
WE'LL FOLLOW THE BOYS
OF MANCHESTER UNITED
THE BUSBY BABES
For we made a
promise,
To defend our faith,
In Manchester United,
The Busby Babes.
We've all sworn allegiance,
To fight till we die,
To stand by United,
And the Red flag we fly,
There'll be no surrender,
We'll fight to the last,
To defeat all before us,
As we did in the past.
For we're Stretford Enders,
With United we grew,
To the famous Red Devils,
We're loyal and true,
To part-time supporters,
We'll never descend,
We'll never forsake you,
We'll be here to the end.
For we all remember,
That '58 day,
And the plane that once stood on,
That Munich runway,
As it tried to take off,
For the third fatal time,
The immortal young babes were,
Cut down in their prime.
In the cold snow of Munich,
They laid down their lives,
But they live on forever,
In our hearts and our minds,
Their names are now legend,
For the whole world to see.
Why this club's a religion,
Spelt M.U.F.C.
So bow down before them,
And lift up your eyes,
For Old Trafford's glory, Will
always survive
WE'LL KEEP THE RED FLAG FLYIN'
HIGH! BECAUSE MAN UNITED WILL NEVER DIE!
Forever Red!
»
29.01.2007 03:21:31 / oddur
Alló alló.
Minna hefur verið af bloggum undanfarið hjá okkur. Fólk hefur
verið að undrast og spyrja sig hreinlega hvað við séum að hugsa.
Langar stundum að skjóta á okkur niðrandi orðum og jafnvel gengur
það enn þá lengra og hágrætur sig í svefn. En hér er ég kominn
aftur, ferskur og sæmilegur.
Ég
held þetta sé bara togstreita sem veldur þessu. Bloggleysi og aftur
togstreita, einfaldara getur það ekki verið.
Í
kvöld skrapp ég í bíó með Andra Grand Valz. Fórum á myndina Blood
Diamond. Þessi mynd er afar góð. Í bland við spennu, sorg, drama og
gamanheitum. Hún er einnig fróðleg um hvað er að gerast þarna í
Afríku. Ég vissi til dæmis ekki að það væru um 200.000 barnahermenn
í Afríku. Börn sem eru tekin af foreldrum sínum og þjálfuð til þess
að skjóta saklaust fólk. Agalegt að horfa upp á þetta.
Nú
erum við MA-ingar í tæplega hálfs mánaðar frí, en við byrjum aftur
núna á fimmtudaginn að ég held. Þetta er búið að vera agalega
notalegt og gott frí. Ekkert mikið marktækt að gerast. Jú, þó, við
í 3.flokk gerðum okkur lítið fyrir og unnum góðan sigur á KA 36-31.
Afar sætur sigur. Grunar að það hafi vottur af sigurvissu setið í
KA mönnum. Þór eru einfaldlega alltaf betri enn KA hehehe . Svo
er að sjálfsögðu HM í handbolta í gangi. Ísland eru komnir í 8-liða
úrslit og spila við frændur Danmörk. Ekki slæmt eigum að taka
þetta. Finnst mér.
Goðsagnir:
-
Jón Gnarr
-
Alexander Petterson
-
Óli Stef
-
Friðrik Ómar
-
Kúrekar Norðursins
-
Sigurjón Kjartansson
-
Þorsteinn Gunnarsson
-
Óli Lár
Sumir reyndar kaldhæðni. Sjást auðveldlega.
Það verður að hafa það.
Held ég fari bara að slaufa þessu, enda orðið
þónokkuð framorðið.
Góðar stundir.
Oddur.
»
19.01.2007 00:10:00 / krilli
Fooookk hvað ég
hlakka til á sunnudaginn! Einn mikilvægasti leikur tímabilsins
gegn franska Afríkuþrælafurstanum og lærisveinum hans.
fficial%26sa%3DG">
DJÖFULL SKAL
UNITED TAKA ÞESSA DEILD Í ÁR!!!!! ÞÁ GETA MOURINHO, KENYON,
ABRAMOVICH, WENGER, BENITEZ OG ALLT ÞETTA SKÍTAPAKK FARIÐ Í
RASSGAT!
Who sing of
victory,
Of games that brought us glory,
From Newcastle to Torquay,
Where sixty thousand voices,
Roar us on to victory,
We will follow United,
Hello, Hello, we are the Busby Boys,
Hello, Hello, we are the Busby Boys,
And if you are a City fan,
Surrender or you'll die,
We will follow United.
Whether we're across the sea,
Or whether we're at home,
It matters not we follow,
To all corners of the globe,
We wear the colours proudly,
The black, the white, the red,
We will follow United.
Hello, Hello, we are the Busby Boys,
Hello, Hello, we are the Busby Boys,
And if you are a City fan,
Surrender or you'll die,
We will follow United.
And now we're back in Europe,
The feeling's fucking great,
We'll try to emulate that team,
Of 1968,
We'll win the Cup, have no fear,
And then we'll drink your beer,
And we will follow United...
Forever red!
En að öðru ......
ég hef verið að pæla dáldið í bloggstílum hjá nokkrum síðum sem ég
skoða. Ég ákvað að setja saman týpíska bloggfærslu og sýna hvernig
fólk myndi túlka hana á mismunandi hátt ;D
Getið séð það
hérna til hliðar....
Ætla að enda þetta
á lofsöngvum um Arsenal í tilefni helgarinnar.
He's only a poor
little Gooner
His face is all tattered and torn
He made me feel sick
So I hit him with a brick
And now he doesn't sing anymore
There's only one
Arsene Wenger
One Arsene Wenger
With a packet of sweets and a cheeky smile
Wenger is a fucking paedophile
»
12.01.2007 00:03:55 / oddur
Sjæææl.
Ákvað skyndilega að henda einu bloggsi inn.
Á maður að trúa þessu, þetta er aðeins fyrsta bloggsið á nýju
ári og 12 janúar er rétt um það bil að detta inn.
Ég er samt nokks ánægður með mætingu á síðuna í dag. Þó er
alltaf hægt að bæta.
Prófin eru hafin hjá okkur Kurlee og maður hefur verið að læra
eins og best getur á kosist. Hef nýtt alla lausa tíma. Ndiii. Ég er
kannski að ýkja smá en ég hef verið óhemju góður.
Kannski á eftir að fækka eitthvað í bloggsum á Snepsa. Nema að
Bjarki taki eitthvað fram úr pokahorninu sínu og laumi inn (með
undirhandar úr hægra horni) einhverju rugli.
Talandi um orðatiltæki. Ég hef verið að pæla í orðatiltækjum.
Sum bara making not the sense. Maður er nú alltaf að pæla sko. En
hérna koma einhver vel valinn sem maður botnar alls ekkert í:
Grunaði mér ekki Gvend : Þetta skil ég ekki um
hvaða Gvend er verið að gruna og um hvað er verið að
gruna...Græsku?
Hver röndóttur !: þetta er bara rugl. ég skil ekki
upp né niðrí í þessu.
Of seint í rassinn gripið: Hvenær er orðið of
seint að grípa í rassinn. Veit það einhverrr!?
Sýna e-m hvar Davíð keypti ölið: Notað við tilefni
eins og þegar einhver er reiður við einhver þá segir maður þetta.
gulp vá ég myndi brotna niður ef einhver sýndi mér hvar Davíð
keypti ölið. Og af hverju Davíð var það einhver Hetja?
Þeir hafa eldað saman grátt silfur lengi vel:
Grátt silfur. heee? Elda saman silfur?
Þetta kemur úr hörðustu átt: Er einhver átt
eitthvað harðari enn hinar áttírnar.
Svo fullt af öðru ruglii.
Jæja þetta var bara svona stutt og laggott bloggs. Það er þó
aldrei að vita að maður finni einhver tíma í próftíðinni til að
bloggsa smá. Það kemur samt í ljós einhvrtíman.
jæja ég vill fá slurk af commentum á þetta. Annars sér
maður engan tilgang á þessu bloggsi.
Sjes. Oddurr
»
03.01.2007 23:13:54 / krilli
Essha
Nýtt ár gengið í garð og jólafríið búið. Var fyrir austan öll
jólin og yfir áramótin. Það var alveg ágætt en hefði samt viljað
vera hér fyrir norðan með vinum mínum. En maður gerði bara það
besta úr þessu, þýðir ekkert annað.
Ég strengdi engin áramótaheit, enda gerir það enginn nema fólk
sem hlustar á bylgjuna.
Listi yfir hluti sem hinn týpíski ógeðslegi bylgjuhlustandi
gerir:
- Hlustar á bylgjuna
- Dreymir dagdrauma um Ívar Guðmunds og Bjarna Ara
- Verslar í Hagkaup
- Á Station bíl með tengdamömmuboxi
- Kaus Magna 15 sinnum á hverju Rockstar kvöldi
- Fýlaði Rock Star og allt hallærið í kringum það
- Tekur þátt í vali á manni ársins
- Finnst Siggi Stormur æðislegur
- Verslar í Dressman
- Spyr fólk sem það hittir sjaldan ömurlegra spurninga eins og: "Er
ekki alltaf nóg að gera?"
- Bakkar í stæði
- Horfir á Fólk með Sirrý, les Hér og Nú og er áskrifandi af
Hús&Hýbýli
En nóg um það. Ég held að ég eigi eftir að breyta miklu á þessu
ári. Til að byrja með er ég t.d. að hugsa um að láta breyta mér í
konu. Með 3 handleggi.
Hlutir sem stóðu uppúr á árinu 2006:
- Árshátíð Glerárskóla í febrúar eða mars
- Lokaferðin í 10. bekk
- Sumarið í heild sinni, Íslandsmeistaratitillinn og allt saman
- Ferðin til Englands með pabba
- Gengi United í haust og vetur
Gleðilegt ár!
»
24.12.2006 04:38:33 / oddur
Ágætu aðdáendur okkar og
velunarar síðunar.
Við, Snepsar, sendum
aðdáendum og velunurum síðunar og öllum öðrum sem koma með
einum eða öðrum hætti koma að starfi síðunar, bestu óskir
um Gleðileg Jól og Farsælt Komandi
Ár.
Sjáumst heil á nýju ári.

Oddur, Kristján, Bjarki.
»
21.12.2006 16:33:35 / oddur
Jæja fyrirgefið bloggleysið síðustu daga/vikur.
Jólafríið er byrjað loksins. Sw33t L0rd. Er engan vegin að fatta
að það eru einungis 3 dagar í jól. Þessi mánuður hefur liðið á
ljóshraða. Það er ágætt ágætt, það er ágætt.
Hvað ætla ég að gera um jólin?
Jú...
- Borða mat, mikið af mat
- Sofa, sofa vel
- Fara í ræktina, minnsta kosti annan hvern dag.
- Kveikja í ruslatunnum
- Skemmta mér með strákunum
- Ef til vill spila líka
- Fara í jólaboð
- Horfa á Enska boltann
- Brjóta allt og bramla
- Vera heima og horfa á sjónvarpið (svosem Enska eða eitthvað
annað)
- Læra eitthvað, prófin í Janúar.
- Leysa allt upp í vitleysu
- Vera ógeðslega leiðinlegur við allt og alla
- Ekki tala við nokkurn mann, hvað sem viðkomandi segir.
- Nema ef einhver snertir mig þá öskra ég eins hátt og ég
get
- Ne-ei, nú er ég farinn að bulla og er hættur þessu
- Ætla að halda blogga smá
Ef ég segi svona frá því sem dagana hafa drifið. Þá fór ég suður um
helgina síðustu á U17 æfingar. Gekk vel bara. Gisti hjá Sella með
Nasa og Svenna og Krilli var einnig fyrir sunnan en þeir voru á U17
í fótboltanum. Fórum í keilu á laugardagskvöldið. Tókum tvær
umferðir. Það var alveg ótrúlegt hvað manni gekk illa. Lét menn
eins og Krilla og Sella fara með sigur af hólmi. Hef aldrei fengið
eins lítið að stigum á meðan Krilli halaði stigum inn með ljótasta
keilustíl sem sést hefur í keiluhöllinni.
Í gær voru svo eins konar litlujól í skólanum. Einhverjar ræður
og fékk maður smákökur og mandarínur og læti.
Segji þetta meira en gott. Kannski einhver af okkur strákunum
komi með eitt blogg eða svo fyrir jól. Sjáum til með það.
Allavega þau sem ég á ekki eftir að sjá fyrir jól, hafið það
gott um jólin.
Gleðileg Jól og Farsælt komandi ár.
Oddur

»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|